Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn – Umsóknir óskast fyrir árið 2024

Við Reykjavíkurtjörn
Við Reykjavíkurtjörn

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vestnorræna höfuðborgasjóðnum fyrir árið 2024.

 Hlutverk sjóðsins er að efla samstarf og skilning milli stjórnmálamanna og íbúa í Reykjavík, Tórshavn og Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk). 

Veittir eru styrkir til verkefna sem efla samskipti milli höfuðborganna þriggja og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsóknir skal senda á netfangið radhus@reykjavik.is

Nálgast má umsóknareyðublöð á vefsíðu Reykjavíkurborgar um Vestnorræna höfuðborgasjóðinn.

Umsóknir berist eigi síðar en mánudaginn 1. apríl 2024 og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.

Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. 411 4500.

Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun á árlegum fundi sínum í maí 2024.