Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn - umsóknir óskast fyrir árið 2022

Frá Nuuk á Grænlandi

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum.

Aðilar Vestnorræna höfuðborgasjóðsins eru höfuðborgir Færeyja, Grænlands og Íslands.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsókn skal beint til:

Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar

b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Ráðhúsi Reykjavíkur

Tjarnargötu 11,

101 Reykjavík

Umsóknir berist eigi síðar en sunnudaginn 1. maí 2022 og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.

Umsóknir skal senda á ofangreint heimilisfang eða á netfangið vestnor@reykjavik.is á umsóknareyðublöðum sem nálgast má á vefsíðu Reykjavíkurborgar  um Vestnorræna höfuðborgasjóðinn.

Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. 411 4500.

Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun á árlegum fundi sínum í september 2022.