Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2020

Menning og listir Mannréttindi

""

Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum.

Reykjavíkurborg er aðili að Vestnorræna höfuðborgasjóði Færeyja, Grænlands og Íslands.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsókn skal beint til:

Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar

b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Ráðhúsi Reykjavíkur

Tjarnargötu 11,

101 Reykjavík

Umsóknir berist eigi síðar en miðvikudaginn 1. apríl 2020 og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.

Umsóknir skal senda á ofangreint heimilisfang eða á netfangið vestnor@reykjavik.is á umsóknareyðublöðum sem nálgast má á vefsíðu Reykjavíkurborgar  um Vestnorræna höfuðborgasjóðinn.

Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. 411 4500.

Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun á fundi sínum í Nuuk – Kommuneqarfik Sermersooq á Grænlandi dagana 25.-26. maí 2020.