Verkefnið „Saman gegn ofbeldi" hlýtur Hvatningarviðurkenningu BKR 2016

Mannlíf Mannréttindi

""
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri,  og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri tóku við hvatningarviðurkenningu Bandalags kvenna í Reykjavík fyrir samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu „Saman gegn ofbeldi". 
 
 
Á 100. þingi Bandalags kvenna í Reykjavík, sem haldið var laugardaginn 12. mars 2016, afhenti BKR í þriðja sinn viðurkenningar bandalagsins til aðila sem starfa á áherslusviðum félagsins. BKR telur mikilvægt að vekja athygli á því góða starfi sem unnið er á öllum sviðum samfélagsins og efla jákvæða samræðu.
 
Hvatningarviðurkenning BKR 2016
Hvatningarverðlaunin 2016 fær Samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu „Saman gegn ofbeldi". Markmið samstarfsins er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á þeim heimilisofbeldismálum sem upp koma, í því skyni að tryggja öryggi borgarbúa á heimilum sínum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og bæta stöðu barna sem búa við heimilisofbeldi.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu veittu viðurkenningunni móttöku á fundinum.
 
Kona ársins 2016
Kona ársins að þessu sinni er Inga Dóra Sigfúsdóttir - fyrir brautryðjandi starf á sviði rannsókna á líðan barna og unglinga í nútímasamfélagi. Inga Dóra Sigfúsdóttir er prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnandi rannsóknarsetursins Rannsóknir og greining. Hún hlaut nýverið 300 milljón króna styrk frá Evrópusambandinu til að rannsaka líðan, hegðun og heilsu íslenskra barna. Í rannsókninni eru tengd saman mismunandi fræðasvið og skoðað er allt í senn; áhrifin á andlegu líðanina, á hegðunina, sem og líffræðilegu hliðina. Þannig eru tengdir saman þættir frá mismunandi fræðasviðum.