Vanda þarf frágang á sorpi við heimili vegna sóttvarna

Covid-19 Umhverfi

""

English below. Polski poniżej - Reykjavíkurborg hefur aukið sóttvarnir til verndar starfsmönnum sínum sem vinna við sorphirðu. Til að koma í veg fyrir smit starfsmanna vill Reykjavíkurborg koma eftirfarandi tilmælum til íbúa.

Á ensku: New procedures to keep waste disposal intact and limit the spread of disease

Á pólsku: W celu zapobiegania zarażeniem prosimy o szczególnie staranne pakowanie odpadów

Á íslensku: Vanda þarf frágang á sorpi við heimili vegna sóttvarna

Mikilvægt er að fara eftir tilmælunum til að varna því að sorphirða í borginni raskist.

  • Blandaður úrgangur þarf að vera í lokuðum pokum (gráa tunnan).
  • Ekki má yfirfylla tunnur, þær þurfa að vera lokaðar svo starfsmenn komist ekki í snertingu við úrgang við losun eða hann falli úr ílátum.
  • Á þeim heimilum þar sem smit hefur komið upp þarf að huga sérstaklega að mögulegum smitleiðum. Nota þarf heila poka og hnýta vel fyrir þá. Huga þarf að því að smit berist ekki utan á pokum.  Snýtubréf eiga heima í lokuðum pokum með blönduðu heimilissorpi en ekki með pappírsúrgangi. Latexhanskar og eins eldhúsbréf sem hafa verið notuð við þrif eða sótthreinsun skal sömuleiðis setja með blönduðum úrgangi.
  • Mikilvægt er að flokka vel og nýta plássið í tunnum heima. Gott er að brjóta saman fernur, pizzakassa og slíkt til að minnka umfang.
  • Í fjölbýli með sorprennum þarf að skipta reglulega um tunnur undir þeim svo rennurnar stíflist ekki. Þeir sem sjá um sorpgeymslur ættu að huga vel að hreinlæti og þvo sér og/eða spritta eftir á. Einnig er gott að nota einnota hanska og henda þeim í blandaðan úrgang að verki loknu.
  • Íbúar þurfa sjálfir að fara með umfram úrgang sem ekki kemst í tunnur á endurvinnslustöðvar Sorpu.

Nokkrar algengar spurningar og svör

Verður umframsorp tekið ef það er í pokum og sett við hlið tunnu?

Nei, það er því miður ekki hægt út af sóttvörnum.

Er óhætt að setja plast og pappír í tunnur undir endurvinnsluúrgang eða verður að nota grenndarstöðvar út af hættu í móttökustöð? Eða hætta að flokka?

Engin breyting er á flokkun í Reykjavík, nema að efni sem hugsanlega er sóttmengað, verður að setja í gráa tunnu. Flokkaður úrgangur frá Reykjavíkurborg fer ekki í eftirflokkun og er því ekki hætta á að smit berist á milli.  Flokkun er mikilvæg svo úrgangur rúmist í ílátum.

Ég bý á Kjalarnesi og flokka lífrænan eldhúsúrgang í tilraunaverkefni. Má setja eldhúsbréf og snýtibréf í lífræna hólfið?

Nei, snýtibréf og eins eldhúsbréf skal nú setja í hólf fyrir blandaðan úrgang.*

Hægt er að losa sig við flokkaðan úrgang á  grenndarstöðvum víðsvegar um borgina og á endurvinnslustöðvum SORPU. Á sorphirðudagatali Reykjavíkurborgar má sjá hvar sorphirðan er að störfum. Þar er líka að finna nýjustu tilkynningarnar frá sorphirðunni.

* Til viðbótar var farið að safna lífrænum eldhúsúrgangi í Hamrahverfi haustið 2020 og gilda sömu reglur þar.