Nýju brúntunnunni fyrir söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi verður dreift í Hamrahverfi í Grafarvogi um helgina. Einnig verður litlu söfnunaríláti til að nota í eldhúsi dreift til allra heimila sem og maíspokum til að nota fyrstu vikurnar.
Brúntunnan verður tæmd í fyrsta sinn í seinni hluta næstu viku, samhliða tæmingu á grátunnunni.
Hér má lesa sér til um brúntunnuna og hvað má fara í hana. Þarna eru líka upplýsingar á ensku og pólsku.
Hér er hægt að lesa frétt um tilraunaverkefnið.