Upplýsandi og vel sóttur fundur um matsáætlun

Samgöngur

Fundargestir.

Kynningarfundur matsáætlunar vegna umhverfisáhrifa vegna breytinga á gatnamótum Reykjanesbrautar - Bústaðavegar með tilliti til Borgarlínu var haldinn miðvikudaginn 29. mars í húsakynnum Reykjavíkurborgar.

Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Betri samgöngur, áformar breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Hluti af framkvæmdinni er að útfæra leið Borgarlínu milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka. Tilgangurinn er að efla alla ferðamáta, minnka umferðartafir á háannatíma og bæta umferðaröryggi. Framkvæmdirnar heyra undir Samgöngusáttmálann.

Á fundinum voru mögulegar lausnir fyrir gatnamótin og tengingar Borgarlínu kynntar sem og áherslur í komandi umhverfismati lausnanna.

Auk fulltrúa Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Betri samgangna voru á fundinum fulltrúar Borgarlínu og verkfræðistofunnar EFLU, sem er ráðgjafi tillagnanna. Fundurinn var tekinn upp má sjá hann á YouTube-rás Reykjavíkurborgar.

     

    Berglind Hallgrímsdóttir hjá  EFLA kynnti mögulega kosti og frumdrög Gatnamóta Reykjanesbrautar – Bústaðavegar og tenging Borgarlínu í Vogabyggð að Stekkjarbakka. Kynningartími matsáætlunar til 27.04.2023. Áætlunin er aðgengileg á heimasíðu Skipulagsstofnunar. Allar umsagnir skulu sendar á netfangið skipulag@skipulag.is.

    Eftir kynningu Berglindar var fyrirspurnum fundargesta svarað og tóku þá fleiri sérfræðingar þátt í því að svara. Að lokum voru opnar umræður milli fundargesta og sérfræðinga og útfærslur skoðaðar betur á veggspjöldum.