Ungmenni funda með borgarstjórn

Stjórnsýsla Skóli og frístund

""

Þriðjudaginn 12. maí funda fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna með borgarstjórn á fundi í borgarstjórnarsal Ráðhússins. Til umfjöllunar eru tillögur frá ungmennum í Reykjavík um málefni sem á þeim brenna og þeim finnst að betur megi fara í borginni.

Fundurinn hefst kl. 16.15 og vegna gildandi takmarkana á samkomum vegna farsóttar verður einungis hægt að fylgjast með fundinum í gegnum streymi að þessu sinni.  

Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá nítjándi í röðinni. Að þessu sinni liggja átta tillögur fyrir fundinum og snúa þær m.a. að því að kennsla í fjármálalæsi verði skylda í grunnskólum, aðgengi verði að ókeypis tíðarvörum í öllum grunnskólum og félagsmiðstöðvum, að ungmennahúsum í borginni verði fjölgað og að grunnskólakennarar fái aukna fræðslu um loftslagsmál.

Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa haft í nógu að snúast í vetur. Ráðið hittist vikulega og skipulagði að auki starfsdag fyrir unglinga í öllum ungmennaráðum Reykjavíkur. Ráðið var í góðu og miklu samstarfi við ungmennaráð skátanna en ráðin undirbjuggu í sameiningu og héldu fjölmennt málþing um málefni ungmennaráða, Ráðabrugg, þar sem ungmenni gátu sótt innblástur fyrir störf sín á komandi starfsári og kynnst starfi annarra ráða. Áhersla var lögð á verkefni sem hafa verið rekin af og fyrir ungmenni og gagnlegar reynslusögur frá hinum ýmsu ungmennaráðum. Reykjavíkurráð ungmenna á einnig fulltrúa í skóla- og frístundaráði og í stjórn Barnamenningarhátíðar.

Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur allra ungmennaráðanna sex í Reykjavík en hvert ungmennaráð tilnefnir sína fulltrúa í Reykjavíkurráðið.

Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna og ungmennaráðanna í Reykjavík er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur og síðastliðin ár hafa Reykjavíkurráðið og ungmennaráðin í borginni fjallað um málefni ungs fólks og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík.

Yfirlit yfir tillögurnar sem lagðar verða fyrir borgarstjórn.

Beint streymi frá fundinum.