Unglist 2024 - Listahátíð ungs fólks

Mannlíf Menning og listir

Klassa tónar, tónleikar nemenda úr tónlistarskólum höfuðbrogarsvæðisins.
Klassa tónar, tónleikar nemenda úr tónlistarskólum höfuðbrogarsvæðisins.

Unglist 2024, listahátíð ungs fólks hófst 2. nóvember og stendur yfir í viku. Hátíðin hefur það að markmiði að hefja menningu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára til vegs og virðingar. 

Dansinn dunar, hljóðfæri eru þanin, söngurinn ómar, leikarar etja kappi í spuna, fyrirsætur spranga um tískupalla og óheft myndsköpun og skáldskapur eiga sinn fasta sess á hátíðinni. Unglist er hátíð þar sem fjölbreytileikinn þrífst og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Á unglist gefst færi á að koma menningu ungs fólks á framfæri og gefa þeim færi á að sýna listsköpun sína allt frá hugmynd til framkvæmdar. 

Tískusýningin Átök, nemendur í fatahönnun sýndu hönnun sína.
Átök tískusýning nemenda í fatahönnun.

Meðal þess sem í boði er Kór og klór, Jam session, Leiktu betur, Dansa, teygja og tvista, tískusýning og margt fleira. 

Frítt er inn á alla viðburði Unglistar.

Unglistin hefur allt frá upphafi verið haldin af Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks, sem heyrir undir menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar.