![Hlemmur umferð](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2024-06/umferd_custom.jpg?h=8b488e7d&itok=KPIhtvR3)
Mynd/Rautt ljós á Laugavegi fyrir vöruafgreiðsluna og grænt á gangandi norðanmegin.
Spurt hefur verið um umferðarljósin á gatnamótum Laugavegar og Snorrabrautar þar sem göngugatan sem liggur frá Hlemmi endar. Þrátt fyrir að þessi hluti Laugavegar sé nú göngugata eru umferðarljósin nauðsynleg til að tryggja öruggan ferðamáta á svæðinu.
Ljósin tryggja annars vegar öryggi gangandi vegfaranda og hins vegar að vöruafgreiðsla, á þessum hluta Laugavegar, skapi ekki hættu.
- Rautt ljós á bílaumferð á Snorrabraut logar á sama tíma og gangandi vegfarendur þvera svæðið á grænu ljósi.
- Bílstjórar sendiferðabifreiða sem aka inn á Snorrabraut mega ekki keyra beint út á götuna, þegar umferð á Snorrabraut er á grænu ljósi.
Öryggistími fyrir gangandi er í flestum tilvikum lengri en fyrir akandi.
Sama kerfi er notað á Strikinu í Kaupmannahöfn.