Þrettándagleði í Grafarvogi

""

Árleg þrettándagleði í Grafarvogi verður mánudaginn 6. janúar næstkomandi frá kl.17.00 til 18.30. Gleðin hefst í Hlöðunni í Gufunesbæ.

Dagskrá:

17:00 Notaleg stund í Hlöðunni:
- Kakó, vöfflu og glowstick sala
- Andlitsmálning fyrir börnin
- Harmonikkuleikur
17:20 Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög
17:55 Skólahljómsveitin ásamt jólasveinum leiða gönguna frá Hlöðunni
18:00 Kveikt í brennu
- Fjörkarlarnir skemmta á sviði
18:30 Þrettándagleði lýkur með flugeldasýningu

Öll velkomin. Skemmtum okkur saman, ungir sem aldnir og brennum út jólin. Það er Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, frístundamiðstöðin Gufunesbær, Landsnet, Faris, Fanntófell, Kvikk, Vélfang, Korpúlfar, skólahljómsveit Grafarvogs og Hjálparsveit Skáta Reykjavík sem hafa undirbúið og stutt þrettándagleðina í Grafarvogi.

Auglýsing á pdf-formi.