Þekkir þú Reykvíking ársins 2023?

Reykvíkingar ársins 2022 þau Kamila Walijewska og Marco Pizzolato fyrir framtakið frísskápur í miðbæ Reykjavíkur veiddu lax í Elliðaánum í fyrra.
Reykvíkingar ársins 2022

Borgarstjórinn í Reykjavík óskar í þrettánda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar í borgarsamfélaginu. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.

Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavík og íbúum borgarinnar til góða á einhvern hátt.

Þetta gæti verið einhver sem hefur haft jákvæð áhrif á  borgarlífið, sýnt nærumhverfinu alúð eða gert mikið gagn í borginni á undanförnum árum með einhverjum hætti.

Hann, hún eða hán sem hlýtur viðurkenningu sem Reykvíkingur ársins opnar Elliðaárnar með því að renna fyrir laxi í ánni ásamt borgarstjóra, í boði Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu.

Reykvíkingar ársins í fyrra voru þau Kamila Walijewska og  Marco Pizzolato fyrir framtakið frískápur í miðbæ Reykjavíkur. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um matarsóun og deila mat sem annars færi til spillis.

Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins.

Reykvíkingur ársins 

Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út  mánudaginn 12. júní.