Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu loka vegna hertra sóttvarnaraðgerða.
Vegna hertra aðgerða á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmdaráð almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins ákveðið að loka öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu á morgun miðvikudaginn 7. október. Lokunin á einnig við um skólasund.
Næstu skref varðandi opnunartíma sundlauga verða auglýstar þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem snýr að auknum takmörkum á höfuðborgarsvæðnu verður birt.