Styrkir úr Húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar 2022

Við Lækjargötu. Ljósmynd Ragnar Th. Sigurðsson

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.

2. Tímaáætlun.

3. Kostnaðaráætlun.

4. Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.

 

Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum kl. 15-17. Sími: 411 6333.

Einnig má senda tölvupóst á minjavarsla@reykjavik.is.

Umsóknir eru eingöngu mótteknar á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á Mínum Síðum á vef Reykjavíkurborgar

Opnað verður fyrir aðgengi að umsóknum þann 28. janúar 2022, kl. 13:00, og lokað verður þann 20. febrúar 2022, kl. 23:59.

Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað er árið 2022 og eru ekki nýttir fyrir lok árs 2023 falla niður.