Styrkir fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur - umsóknir óskast
![Hátíðahöld á Austurvelli í tilefni af nýfengnum kosningarétti kvenna árið 1915. Ljósmynd Magnús Ólafsson](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2024-04/mao_61_custom.jpg?h=4ed63de5&itok=eMwk-nlq)
Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 22. maí 2024.
Ert þú með bók, kvikmynd, sjónvarpsefni, vefsíðu eða aðra miðlun í undirbúningi sem tengist sögu Reykjavíkur og hyggst nota ljósmyndir Ljósmyndasafns Reykjavíkur í verkefninu? Þá getur þú sótt um styrk til Reykjavíkurborgar vegna kaupanna. Styrkurinn felst í niðurgreiðslu á kostnaði vegna myndbirtinga.
Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2024 eða í ársbyrjun 2025 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.
Markmið styrkveitingarinnar er stuðla að öflugri miðlun menningararfleifðar Reykjavíkur og sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs um val á umsækjendum.
Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.