Styrkir fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur

Frá Miklubraut 1962-1964 Ljósmyndari: Gunnar Rúnar Ólafsson

Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til hádegis mánudaginn 29. maí 2023.

 

Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2023 eða í ársbyrjun 2024 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.

Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningararfleifðar Reykjavíkur og hvetja til miðlunar á sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og íþróttasviði fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar um val á umsækjendum.

Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar