Styrkir fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur

Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til hádegis mánudaginn 29. maí 2023.
Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2023 eða í ársbyrjun 2024 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.
Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningararfleifðar Reykjavíkur og hvetja til miðlunar á sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og íþróttasviði fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar um val á umsækjendum.
Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.