Skipulagslýsing fyrir Geirsnef kynnt

Skipulagsmál

Markmiðið er að styrkja svæðið sem fjölbreytt útivistarsvæði. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th.
Loftmynd yfir Geirsnef sem sýnir veg, gras, hús, sjó og ár.

Skipulagslýsing á breyttu deiliskipulagi fyrir Geirsnef var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í vikunni. Markmiðið er að styrkja svæðið sem fjölbreytt útivistarsvæði.

Með þéttingu íbúabyggðar bæði í Vogabyggð og við Ártúnshöfða verður Geirsnef sífellt mikilvægara útivistarvæði fyrir íbúa. Í rammaskipulagi fyrir Ártúnshöfða er lagt til að Geirsnef verði gert að borgargarði, útivistarsvæði með náttúrulegu yfirbragði. 

Helstu viðfangsefni og markmið

  • Skipuleggja svæðið sem borgargarð, útivistarsvæði með náttúrulegu yfirbragði 
  • Bæta nýtingu svæðisins með gróðursetningu, landmótun og skjólmyndun 
  • Skoða möguleika á íþróttaafþreyingu á svæðinu 
  • Skilgreina gönguleiðir um svæðið 
  • Afmarka lausagöngu-/æfingarsvæði fyrir hunda. 
  • Koma fyrir Borgarlínu yfir nefið og norður-suður undir Vesturlandsveg ásamt göngu- og hjólastíg.

Leitað verður umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, hverfisráði og íbúasamtökum í aðliggjandi borgarhlutum, Veitum ohf., Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Veiðifélagi Elliðavatns, Stangveiðifélagi Reykjavíkur, Íþróttafélaginu Þrótti, Dýraþjónustu Reykjavíkur og Félagi ábyrgra hundaeigenda.

Skipulagsgögnin verða gerð aðgengileg inni á Skipulagsgáttinni frá 14. nóvember og þá getur almenningur sem og hagaðilar kynnt sér málið betur og komið með athugasemdir.