Alls verða sextán lóðir við leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar ýmist endurgerðar eða lagfærðar í ár fyrir samtals 500 milljónir. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí og að þeim ljúki í ágúst.
Sex grunn- og leikskólalóðir verða endurgerðar. Skólarnir sem um ræðir eru grunnskólarnir Ártúnsskóli, Brúarskóli og Rimaskóli og leikskólarnir Furuskógur-Furuborg, Garðaborg og Ægisborg.
Lóðirnar eru endurgerðar í áföngum
Leikskólalóðir:
· Furuskógur - Furuborg (1. áfangi af tveimur)
· Garðaborg (1. áfangi af tveimur)
· Ægisborg (2. áfangi af tveimur)
Grunnskólalóðir:
· Ártúnsskóli (2. áfangi af tveimur)
· Brúarskóli (2. áfangi af þremur)
· Rimaskóli (2. áfangi af tveimur)
Hætt að nota öryggismöl sem fallvörn
Enn fremur verða gerðar ýmsar lagfæringar á tíu leikskólalóðum til viðbótar en þær eru við Engjaborg, Fífuborg, Geislabaug, Hólaborg, Klettaborg, Langholt-Sunnuborg, Litla-Holt, Lyngheima, Nes-Hamra og Sólborg. Á þessum lóðum verða leiktæki endurnýjuð á hluta leiksvæða og öryggismöl skipt út með nýju fallvarnarefni og/eða gervigrasi. Það er stefna borgarinnar að hætta notkun öryggismalar sem fallvörn á leiksvæðum.
Nýir boltavellir við Vesturbæjarskóla
Til viðbótar við þetta koma nýir boltavellir og leiksvæði við Vesturbæjarskóla í sumar en þar verður framkvæmt fyrir 90 milljónir króna. Greint var frá fyrirhuguðum framkvæmdum við skólann á vef Reykjavíkurborgar fyrr í mánuðinum.