Nýir boltavellir við Vesturbæjarskóla

Umhverfi Skóli og frístund

""

Nýir boltavellir og leiksvæði með trampólínum og pókóvöllum koma við Vesturbæjarskóla í sumar.

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við annan áfanga vegna endurgerðar og stækkunar lóðar við Vesturbæjarskóla.

Áður hafa farið fram gagngerar endurbætur á skólalóðinni þegar áfangi eitt var framkvæmdur. Í þeim áfanga var gengið frá lóð við nýja viðbyggingu skólans, ný leiktæki og rólur sett upp, auk yfirbyggðs hjólaskýlis og vistlegra útivistarpalla úr tré. Þá var hellulögn endurnýjuð í kringum skólann.

Í öðrum áfanga verður lóðin stækkuð í samræmi við samþykkt deiliskipulag og komið fyrir nýrri gönguleið á milli Hringbrautar og Ásvallagötu.

Gerðir verða nýir boltavellir og leiksvæði á gervigrasi, ný hvíldar- og útikennslusvæði ásamt pókó- og trampólíngörðum. Einnig verður komið fyrir setbekkjum, leikpöllum og nýjum gróðurbeðum á lóðinni. Þess má geta að enginn fótboltavöllur með gervigrasi er í þessum hluta Vesturbæjar. Ný og glæsileg viðbygging við skólann var tekin í notkun haustið 2018.

Framkvæmdir eru áætlaðar sumarið 2020. Kostnaður er áætlaður 90 milljónir króna.