Sæktu um styrk í hverfissjóð Reykjavíkurborgar

""

Búið er að opna fyrir umsóknir í hverfissjóð Reykjavíkurborgar og er umsóknarfresturinn frá 15. mars til 15. apríl 2023.

Tilgangur hverfissjóðs er að efla félagsauð, samstöðu og samvinnu íbúa í hverfum borgarinnar, stuðla að fegrun hverfa, auka öryggi og auðga mannlíf með fjölbreyttum hætti þannig að tekið sé mið af þörfum íbúa.

Sjóðurinn styrkir þá sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem nýtast öllum eða stórum hluta íbúa hverfisins, stuðla að þátttöku fjölbreyttra hópa í mannlífi hverfisins eða miða að fegrun eða uppbyggingu svæða sem nýtast stórum hluta íbúa.

Aftur verður opnað fyrir umsóknir næsta haust frá 15. september til 15. október næstkomandi. Með því að hafa umsóknartímabil tvisvar á ári  þykir jafnræði aukast á milli umsækjenda hvað varðar úthlutun úr sjóðnum yfir árið.

Upplýsingar um hverfissjóð og umsóknareyðublað