Reykjavíkurborg greiðir fyrir gerð langtímakjarasamninga

Ráðhús Reykjavíkur speglast í tjörninni.

Borgarráð samþykkti í dag að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga við gerð kjarasamninga til 4 ára sem felur meðal annars í sér að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum og tryggja að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar.

Borgarfulltrúar meirihlutaflokkanna Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar í borgarstjórn ásamt borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins samþykktu svohljóðandi ályktun á fundi borgarráðs í dag:

Borgarráð ályktar að Reykjavíkurborg vilji greiða fyrir gerð kjarasamninga til 4 ára sem miða að því að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Reykjavíkurborg telur að hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði feli í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa. Reykjavíkurborg er því tilbúin að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum, taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og tryggi að auki að skólamáltíðir í grunnskólum verði gjaldfrjálsar með 75% greiðsluþátttöku ríkisins út samningstímabilið.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins og lögðu fram svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja rétt að Reykjavíkurborg greiði fyrir gerð kjarasamninga til 4 ára með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði munu fela í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa. Telja fulltrúar Sjálfstæðisflokks rétt að Reykjavíkurborg taki þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum og taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Fulltrúarnir telja þó rétt að leita annarra leiða til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur og velferð, en í gegnum gjaldfrjálsar skólamáltíðir grunnskólabarna.

Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna hafði vikið af fundi þegar málið var tekið á dagskrá en áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram eftirfarandi bókun: 

Flokkur fólksins tekur undir þessa ályktun og vonar innilega að skrifað verði undir kjarasamninga sem fyrst. Hins vegar hefði fulltrúi Flokks fólksins vilja sjá í þessari yfirlýsingu hversu mikið á „ halda aftur af gjaldskrárhækkunum“. Hvaða prósentu er er verið að tala um hér?  Flokkur fólksins hefur mótmælt harðlega gjaldskrárhækkunum síðustu ár sem verst hafa komið niður á bágstöddum. Gjaldskrárhækkanir hafa auk þess farið beint  út í verðlagið.