Óskað eftir tilnefningum fyrir gróskumikið leikskólastarf

Skóli og frístund

Leikskólastarf

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar efnir til hvatningarverðlauna fyrir framúrskarandi leikskólastarf í borginni þar sem öll geta tilnefnt. Markmiðið er að vekja athygli á því gróskumikla leikskólastarfi sem fram fer á vegum Reykjavíkurborgar. Hægt er að tilnefna til 15. desember.

Á verkefni í þínum leikskóla skilið hrós? Eða veistu um verkefni sem á skilið að fá hrós og hvatningu?

Verðlaunin eiga að veita starfsfólki  jákvæða hvatningu og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning fyrir vel unnið verk í þágu barna og foreldra og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Viltu hvetja til góðra verka?

  • Viltu vekja athygli á gróskumiklu skóla- og frístundastarfi í borginni?
  • Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum í leikskóla, grunnskóla eða frístundastarfi?
  • Viltu veita fólkinu sem vinnur með börnum í skóla- og frístundastarfi viðurkenningu og hvatningu?

Öll geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna

Öll geta tilnefnt til hvatningarverðlauna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka. Tilnefna má nýbreytni- og þróunarverkefni um hvaðeina í skóla- og frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar, verkefni hópa eða einstaklinga er átt hafa frumkvæði.

Opið er fyrir tilnefningar til 15. desember - Smelltu hér til að tilnefna.