Opnunartímar um páskana

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Enginn þarf að láta sér leiðast um páskana því þó svo að víða sé lokað. Á föstudaginn langa og páskadag verður hægt að skella sér í sund, á skauta, á skíði eða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn svo eitthvað sé nefnt.

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum má nálgast upplýsingar um opnunartíma á heimasíðu www.mu.is.

Ef sundferð er á dagskránni þá er upplagt að athuga með afgreiðslutíma sundlauganna.

Opnunartíma skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli má nálgast á skidasvaedi.is.
Ef þú vilt skella þér á skauta skoðaðu þá opnunartímann í Skautahöllinni.
Allflest veitingahús í miðborginni eru með opið, en rétt er að hringja áður og kanna með opnunartíma áður en af stað er haldið.

Einnig minnum við á viðburðadagatal Reykjavíkurborgar þar sem ýmislegt er að gerast í borginni um páskana: www.reykjavik.is/vidburdir

Gleðilega páska.