Opnað fyrir umsóknir um stofnframlög

Litrík hús í Bryggjuhverfi í Grafarvogi
Litrík hús í Bryggjuhverfi í Grafarvogi.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög vegna almennra íbúða.

Umsóknum skal skilað rafrænt í stofnframlagakerfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Reykjavíkurborg veitir stofnframlög til kaupa eða byggingar á leiguíbúðum fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum. Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi í Reykjavík með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. 

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí næstkomandi.

Stofnframlög