Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða í Reykjavík

Garðyrkja

Matjurtagarðar í Fossvogi. Þar eru í boði átta fermetra kassar til ræktunar. Mynd/Róbert Reynisson
Matjurtir, sem ræktaðar eru í kassa.

Opnað verður fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni miðvikudaginn 15. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí.

Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og allskonar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2023 eru 6.600 kr. fyrir garðland í Skammadal (u.þ.b. 100 fermetrar) og 5.500 kr. fyrir garð (u.þ.b. 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi og Kjalarnesi verða á kr. 4.400 kr. kassinn (8 fermetrar).

Umsóknir sendist á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is.

Ókeypis fræðsla um matjurtaræktun hjá Reykjavíkurborg

Í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal er boðið upp á ýmsa fræðslu eins og í hádegisgöngunum sem eru alla föstudaga í júní, júlí og ágúst. Þær taka hálftíma og eru kl. 12.00 á íslensku og kl. 12.40 á ensku. Þær eru líka kjörið tækifæri til að spyrja starfsfólk garðsins um matjurtaræktun.

Einnig býður Grasagarðurinn upp á viðburðinn „Hollráð í matjurtagarðinum“ þriðjudaginn 16. maí klukkan 17.30-19.00. Um er að ræða ókeypis spurt og svarað um allt sem viðkemur matjurtaræktun, uppskeru og garðrækt.