Opið fyrir umsóknir um dvöl í Kjarvalsstofu í París
Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð/vinnustofa í miðborg Parísar, sem listamenn geta sótt um að fá leigða.
Stúdíóíbúðin er 40 fm og er hluti af alþjóðlegu listamannamiðstöðinni Cité Internationale des Arts. Íbúðin er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Kjarvalsstofa er í umsjá Reykjavíkurborgar og menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Opnað var fyrir umsóknir um dvöl í Kjarvalsstofu þann 11. febrúar sl. en umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 4. mars. Hægt er að sækja um dvöl á tímabilinu 3. maí 2022 til 27. apríl 2023 en úthlutun er að lágmarki tveir mánuðir í senn.
Sótt er um dvöl í Kjarvalsstofu á Mínum síðum Reykjavíkurborgar eða á Rafrænni Reykjavík en allar frekari upplýsingar um Kjarvalsstofu er að finna hér.