Öll velkomin á opnun Jóladalsins

Mannlíf Menning og listir

Ljósum skreytt hringekja í Ljósadalnum í Laugardal, myrkur og snjór.

Undanfarnar vikur hefur starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sett upp jólaljós um allan garð svo ævintýri líkast er að ganga um garðinn í rökkrinu og heimsækja dýrin. Þau sem þora geta líka heimsótt sjálfan jólaköttinn.

Formleg opnun Jóladalsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður á morgun, föstudaginn 29. nóvember og ókeypis verður inn frá klukkan 17:00. Einar Þorsteinsson borgarstjóri mun opna Jóladalinn við tjörnina í garðinum klukkan 17.30 og flytja jólakveðju til borgarbúa og gesta. Listskautahópur frá Skautafélagi Reykjavíkur mun sýna listir sínar, Lúðrasveit verkalýðsins skemmtir og Jóhanna Guðrún syngur nokkur lög. Lalli töframaður heldur utan um dagskrána. Á leið frá innganginum og að tjörninni geta gestir átt von á að rekast á kvartettinn Barböru og kynjaverur úr hugarheimi Brian Pilkington.

Frítt inn á kvöldin um helgar á aðventunni

Kvöldopnanir verða alla aðventuna líkt og undanfarin ár en opið verður til klukkan 20 föstudaga til sunnudaga frá 29.nóvember til jóla. Verkefnið Jólaland í Laugardalnum var kosið í hverfakosningum í fyrra og því býður „Hverfið mitt“ öllum að heimsækja jólaljósaskreyttan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn frá klukkan 17-20 föstudaga til sunnudaga á aðventunni. Hefðbundinn opnunartími er annars alla daga frá klukkan 10 til 17 og þá gildir hefðbundinn aðgangseyrir. 

Á kvöldopnunum verður hægt að fara í hringekjuna, tónlist mun óma, matarvagnar verða á staðnum fyrir svanga gesti og drykkir og notalegheit í veitingaskálanum. Ratleikur fyrir alla fjölskylduna verður aðgengilegur í gegnum smáforritið Húsdýragarður – viskuslóð sem finna má í snjallverslunum snjalltækja. Hundaeigendum sem hafa skráð hunda hjá sínum sveitarfélögum er boðið að taka besta vininn með í kvöldheimsókn.

jólaljós á göngustígnum í Laugardal, trjágöng, myrkur, ljós á trjástofnum, fólk á gangi