Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan?

Ragnar Th. Sigurðsson
Loftmynd af Reykjavík 2023.

Opið málþing um félagslegt landslag í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 5. janúar 2024.

Yfirskrift málþingsins er Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan? Málþingið hefst klukkan 9.00 og verður einnig hægt að fylgjast með málþinginu í streymi.

Á fundinum mun Kolbeinn H. Stefánsson fara yfir tímamótarannsókn um félagslegt landslag sem unnin var í samstarfi við Reykjavíkurborg. Sérfræðingar ásamt fulltrúum sveitafélaga munu ræða niðurstöður rannsóknarinnar, tækifæri og áskoranir á Stór-Reykjavíkursvæðinu í pallborði í lok málþings.

Húsið opnar kl. 8:30, létt morgunhressing.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Harpa Þorsteinsdóttir verkefnastjóri lýðheilsumála á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

9:00–9:15  Ávarp borgarstjóra

Dagur B. Eggertsson

9:159:45  Félagslegt landslag í Reykjavík - niðurstöður rannsóknar

Kolbeinn H. Stefánsson, dósent á Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands

9:459:55  Lagskipting og búseta

Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor á Félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri

9:5510:05  Ójöfnuður í heilsu í Reykjavík 

Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands

10:0510:15  Líðan Íslendinga eftir aldri, kyni og fjárhagsstöðu

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis

Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá Embætti landlæknis

10:15  Pallborð og samantekt

Dagur B.Eggertsson - borgarstjóri 

Kolbeinn H. Stefánsson -  dósent á Félagsvísindasviði HÍ

Sigþrúður Erla Arnardóttir - framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar Reykjavíkur 

Óskar Dýrmundur Ólafsson - framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar Reykjavíkur

Gunnar Axel Axelsson - bæjarstjóri Vogum 

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir - bæjarstjóri Árborg 

Öll velkomin!