Mörk kjördæma í Reykjavík i alþingiskosningum 2024

Kosningar

Atkvæðagreiðsla

Landskjörstjórn hefur tilkynnt hvar draga skuli mörk Reykjavíkurkjördæma fyrir alþingiskosningar þann 30. nóvember 2024. 

 

Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: 

Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi að Víkurvegi. Þaðan skulu mörkin dregin eftir Víkurvegi til austurs að Reynisvatns­vegi, í austur að Jónsgeisla og eftir Jónsgeisla.

Mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningar 30. nóvember 2024
Mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningar 30. nóvember 2024

Frá Jónsgeisla í beinni línu að gatnamótum Þórðarsveigs og Andrésarbrunns. Þaðan eftir miðlínu Þórðarsveigs að Marteinslaug og eftir Marteinslaug og þaðan í beinni línu að miðlínu Biskupsgötu. Eftir miðlínu Biskupsgötu að gatnamótum Reynisvatnsvegar. Þaðan eftir miðlínu Hólmsheiðarvegar allt til móts við  Haukdælabraut 66 og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum.

Nánari upplýsingar á stjornartidindi.is