MenntaStefnumót um áherslur í menntun barna og þróun náms til framtíðar

Skóli og frístund

lestur

MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur verður föstudaginn 17. maí. MenntaStefnumótið er haldið á þriggja ára fresti og er ætlað starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg sem gefst tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og samtali um menntun barna og þróun til framtíðar. 

Dagskrá í streymi opin öllum

Dagskráin fyrir hádegi er opin öllu áhugafólki um menntun á Íslandi og verður streymt úr Hörpu á vef MenntaStefnumótsins og á Vísir.is. Kynnt verða fyrirmyndaverkefni úr skóla- og frístundastarfi í borginni og rætt um framtíð menntunar. Eftir streymið verður opin stafræn fræðsla þar sem hægt er að velja um 38 mismunandi fræðsluerindi eins og til dæmis, Hugsandi kennslurými í stærðfræði, Allt milli hinsegin og jarðar, Krefjandi hegðun barna og Fræðsla um málþroskaröskun á mið- og unglingastigi.

Fjölbreytt dagskrá á yfir 30 stöðum

Eftir hádegi verður fjölbreytt dagskrá fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar á meira en 30 stöðum vítt og breytt um borgina þar sem kynntur verður fjöldi fjölbreyttra þróunar- og fyrirmyndarverkefna og starfsfólki gefið tækifæri til að taka þátt í samtali um þróun menntunar í borginni og stilla saman strengi til að vinna að innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar.