Meira og betra verknám með stækkun FB

Framkvæmdir Skóli og frístund

Óskar Jósefsson forstjóri FSRE, Lovísa Margrét Eðvarðsdóttir formaður nemendafélags FB, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB, Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Hallur Karlsson
Óskar Jósefsson forstjóri FSRE, Lovísa Margrét Eðvarðsdóttir formaður nemendafélags FB, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB, Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, taka fyrstu skóflustungurnar að nýrri byggingu fyrir verknám í FB. Standa í röð og sveifla mold upp í loft af skóflunum, grafa í bakgrunni hægra megin.

Framkvæmdir eru að hefjast á 2.654 fermetra verknámsaðstöðu fyrir húsasmíði, rafvirkjun og listgreinar við Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB). Borgarstjóri, mennta- og barnamálaráðherra, skólameistari, formaður nemendafélagsins og framkvæmdaraðili tóku fyrstu skóflustungur við hátíðlega athöfn með nemendum og starfsfólki í dag.

Nýja viðbyggingin mun stórauka aðgang að starfs- og verknámi á höfuðborgarsvæðinu og meira en tvöfalda starfsnámsaðstöðu FB.

"Með þessari viðbyggingu aukast tækifæri ungs fólks í Reykjavík. Það er afar mikilvægt að styrkja þessar námsleiðir og auka fjölbreytileika í valkostum til náms. FB er afar framsækinn skóli og ánægjulegt að ráðast í enn frekari uppbyggingu á framhaldsskólastigi hér í Breiðholtinu," segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri.

"Stækkun verknámsaðstöðu FB er lykilskref á þeirri vegferð að auka aðgengi að starfsmenntun og mæta þörfum fjölbreytts vinnumarkaðar. Þetta er fjárfesting í framtíð ungs fólks og íslensks samfélags," segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra að þessu tilefni.

Páll Daníel Sigurðsson framkvæmdastjóri Eyktar, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Óskar Jósefsson forstjóri FSRE við undirritun samnings um stækkun verknámsaðstöðu við FB. Uppstillt við borð inni þar sem var undirritað.

Páll Daníel Sigurðsson framkvæmdastjóri Eyktar, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Óskar Jósefsson forstjóri FSRE við undirritun samnings um framkvæmdina í dag.

"Með þessari viðbyggingu aukast tækifæri ungs fólks í Reykjavík"

Stuðlað að frjóu samlífi verk- og listnáms

Verktakafyrirtækið Eykt annast framkvæmdina. Kostnaður er 1,8 milljarðar króna og skiptist milli ríkis (60%) og borgar (40%).

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er elsti fjölbrautaskóli landsins, stofnaður 1975. Stefna skólans er að leggja jafna áhersla á bók-, list- og verknám og mæta þannig námsþörfum og áhugasviði ólíkra nemenda.

Fjöldi nemenda stundar nám í húsasmíði (332) og rafvirkjun (412) við FB í dag- og skóla. Með flutningi rafvirkjadeildar í hið nýja húsnæði og stórbættri aðstöðu fyrir kennslu í húsasmíði og myndlist verður stuðlað að frjóu samlífi verknáms og listnáms í skólanum þar sem kennsla ungmenna fer fram á daginn og kennsla fullorðinna á kvöldin. Skólinn styrkist sem lifandi vettvangur fjölbreytts mannlífs í hjarta Breiðholtsins.

Hópur fólks hægra megin, í forgrunni fimm skóflur, vinstra megin stór grafa með skófluna á lofti yfir fólkinu. Frá fyrstu skóflustungu að verknámsaðstöðu í FB.

Aðstandendur verkefnisins og nemendur FB fjölmenntu enda hátíðleg stund þegar fyrsta skóflustungurnar voru teknar, fyrst með rekum og svo með gröfu.