Leitað að húsnæði fyrir leikskóla

Skóli og frístund Stjórnsýsla

Leikskólaborgarar

Reykjavíkurborg vill taka á leigu húsnæði fyrir leikskólastarf. Leitað er að hentugu, björtu og rúmgóðu húsnæði á stærðarbilinu 800 til 2.000 m², ásamt 1.400 til 1.800 m² sólríku og skjólgóðu útileiksvæði. 

Hugsanlegt er að taka á leigu húsnæði á nokkrum stöðum og gert er ráð fyrir að leigutími verði  10-15 ár með mögulegri framlengingu.  Leitað er að húsnæði sem er fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Í auglýsingu á vef Reykjavíkurborgar eru nánari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæði og útleiksvæði þarf að mæta. 

Eigendur húsnæðis eru hvattir til að senda inn upplýsingar og hugmyndir í síðasta lagi 15. október til eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Miðað er við að taka á leigu  húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 6-18 mánaða frá undirritun leigusamnings. 

Nánari upplýsingar: