Komdu í Menningarnæturpottinn

Menningarnótt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans vegna Menningarnætur.

Menningarnótt verður haldin þann 19. ágúst 2023, og að venju verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá vítt og breitt um miðborgina. Hægt er að sækja um styrki úr Menningarnæturpottinum á bilinu 100.000-500.000 kr. til þeirra sem vilja skipuleggja fjölbreytta og skemmtilega viðburði. Viðburðirnir geta verið af öllum stærðum og gerðum og geta allir sem vilja sótt um styrk fyrir viðburði sem lífga upp á hátíðina.

Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi. Allur fjárstuðningur bankans rennur til listamanna sem koma fram á Menningarnótt. 

Lokað hefur verið fyrir umsóknir.