Íþróttafólk Reykjavíkur

Íþróttafólk sem vann til verðlauna Íþróttabandalags Reykjavíkur í gær
Íþróttafólk sem vann til verðlauna Íþróttabandalags Reykjavíkur í gær

Íþróttabandalag Reykjavíkur verðlaunaði íþróttafólk og íþróttalið Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. 

Ólympíska lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir er íþróttakona Reykjavíkur 2024, Benedikt Gunnar Óskarsson handboltamaður í meistaraflokki er íþróttakarl Reykjavíkur 2024. Meistaraflokkur Vals í handbolta er íþróttalið Reykjavíkur 2024.

Umsagnir um sigurvegarana:

Eygló Fanndal Sturludóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur er íþróttakona Reykjavíkur 2024

Eygló Fanndal varð þrefaldur Evrópumeistari ungmenna 23 ára og yngri með nýju persónulegu meti og fékk jafnframt verðlaun sem stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Hún varð Norðurlandamestari í -71 kg fullorðinsflokki í samanlögðum árangri, setti fjögur norðurlandamet og var jafnframt stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Eygló setti sex Íslandsmet á árinu í fullorðins flokki og sex Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri. Hún varð Íslandsmeistari í -71 kg flokki kvenna og var afar nálægt því að tryggja sig inn á Ólympíuleikana. Eygló hefur bætt sig gríðarlega á árinu og tók þátt í hinum ýmsu mótum erlendis með góðum árangri. 

Benedikt Gunnar Óskarsson handboltamaður í meistaraflokki Vals er íþróttakarl Reykjavíkur 2024

Benedikt Gunnar spilaði stórt hlutverk í Bikar- og Evrópubikarmeistaraliði Vals á árinu.  Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 17 mörk í bikarúrslitaleiknum gegn ÍBV í mars og sló þá 22 ára gamalt markamet. Benedikt Gunnar var valinn besti leikmaður efstu deildar karla og snemma á árinu samdi hann við Noregsmeistara Kolstad frá Þrándheimi þar sem hann spilar m.a. í Meistaradeild Evrópu. Undanfarin misseri hefur Benedikt Gunnar verið hluti af A landsliðs hóp karla.

Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR og Skúli Helgason formaður íþrótta-, menningar- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar ásamt þremur liðsmönnum úr handboltaliði Vals
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, Skúli Helgason formaður íþrótta-, menningar- og tómstundaráðs ásam þremur liðsmönnum handboltaliðs Vals

Meistaraflokkur karla Vals í handbolta er íþróttalið Reykjavíkur 2024

Valur átti frábært tímabil og eru bikarmeistarar 2024. Hápunktur tímabilsins verður að teljast frábær sigur Vals í Evrópubikarkeppni karla en þar sigraði liðið sterkt lið Olympiacos í úrslitum keppninnar en úrslit réðust ekki fyrr en eftir vítakastkeppni á erfiðum útivelli í Grikklandi. 

Til hamingju með verðlaunin öll!