Íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals með mestu þátttökuna á Hverfidmitt.is

Hetjan úr hverfinu
Hverfið mitt - Hetjan úr hverfinu

Hátt í 6.000 Reykvíkingar hafa kosið á Hverfidmitt.is en kosningin hófst þann 14. september síðastliðinn.

Hugmyndahöfundar slógu met síðastliðið haust við söfnun hugmynda og í öllum hverfum Reykjavíkur er að finna stórar, flottar og fjölbreyttar hugmyndir fyrir alla aldurshópa sem hægt er að kjósa um.

Þátttaka eftir hverfum í kosningunni Hverfiðmitt 2023
Þátttaka eftir hverfum í kosningunni Hverfiðmitt 2023

Grafarholt og Úlfarsárdalur með mestu þátttökuna

Mesta þátttakan í kosningunni er í Grafarholti og Úlfarsárdal en þar hafa 6,3% íbúa kosið. Í öðru sæti eru íbúar í Laugardal með 6,2 % og fast á hæla þeirra fylgja íbúar Árbæjar og Norðlingaholts með 6%. Í síðustu kosningum trónuðu íbúar Kjalarness á toppnum en fast á hæla þeim komu Árbær og Norðlingaholt og svo Laugardalur.

Í súluritinu hér að ofan má sjá hlutfall íbúa sem hafa kosið í hverju hverfi.

Oft eru örfá atkvæði sem ráða úrslitum um hvaða hugmyndir eru kosnar og því skiptir hvert atkvæði máli. Það er einfalt að kjósa og það er í lagi að kjósa oft. Hafið hugfast að það er samt síðast kosningin sem gildir. 

Borgarbúar eru hvattir til að kjósa á Hverfidmitt.is og auðkenna sig með rafrænum skilríkjum í lokin til að skila inn sínu atkvæði. Kosning er staðfest með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. 

Fjölskyldan kjósi saman

Það er tilvalið fyrir fjölskyldur að kjósa saman, njóta liðsinnis barna og unglinga á heimilinu sem geta ekki kosið, og gefa þeim tækifæri á að velja verkefni sem þeim finnst verðskulda atkvæði. Endilega látið orðið berast og segið frá verkefninu og hvetjið nágranna ykkar, vini og ættingja til að kjósa. Það er enn tími til stefnu því kosningunni lýkur á miðnætti 28. september næstkomandi.

Það er hægt að fá aðstoð við að kjósa í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, og hjá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar á meðan á kosningunni stendur. Einnig má senda fyrirspurnir á hverfidmitt@reykjavik.is.

Til að auðvelda þátttöku íbúa sem ekki hafa íslensku sem fyrsta mál er vefurinn einnig á pólsku og ensku.