Íbúafundur borgarstjóra í Grafarholti og Úlfarsárdal

Framkvæmdir Mannlíf

""

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, heldur opinn fund fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals fimmtudaginn 1. mars næstkomandi í Ingunnarskóla. Fundurinn hefst kl. 20.

Á íbúafundinum mun borgarstjóri fara yfir helstu málefni hverfanna í ítarlegri glærukynningu en þar ber hæst framkvæmdir í hverfunum og uppbygging.

Sólveig Ingibjörg Reynisdóttir framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts mun fara yfir starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar í hverfinu.

VA arkitektar kynna framkvæmdir við skóla og íþróttamannvirki í Úlfarsárdal.

Fundinum verður streymt á vef Reykjavíkurborgar og á facebook síðu hennar.