Húsnæði fyrir leikskóla í Sólheimum
![Sólheimar - húsnæði](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2024-07/solheimar_29-35.png.jpg?h=97b111e1&itok=5j7ObdQW)
Reykjavíkurborg leitar að áhugasömum kaupendum að húsnæði í Sólheimum fyrir leikskóla. Heildarstærð húsnæðis er rúmir 1.100 fermetrar og lóð rúmlega 2.400 fermetrar. Í kaupum munu fylgja þau mannvirki sem eru á lóðinni.
Eignin verður seld með því skilyrði að kaupandi útbúi og reki leikskóla fyrir börn úr Reykjavík í húsnæðinu og verður þeirri kvöð þinglýst við sölu.
Nánari upplýsingar eru á auglýsingavef Reykjavíkurborgar. Skoða auglýsingu: Sólheimar 29-35 til sölu undir leikskóla.