Heilsuborgin Reykjavík – Lýðheilsustefna Reykjavíkur til 2030
Hverfisskipulag Íþróttir og útivist
Borgarstjórinn í Reykjavík býður til kynningar um lýðheilsu í Reykjavík föstudaginn 4. júní nk. klukkan 9.00 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Á fundinum verða kynnt drög að nýrri lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar til 2030 og nokkur þeirra verkefna í Reykjavík sem styðja við hana og framtíðarsýn Græna Plansins um heilsueflandi og öruggt samfélag, þar sem fólk á öllum æviskeiðum hefur jöfn tækifæri til að hlúa að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu.
Fundurinn verður bæði opinn gestum og streymt rafrænt í beinni útsendingu.
Dagskrá
- Erindi borgarstjóra um lýðheilsu í Reykjavík
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri - Heilsuborgin Reykjavík Drög að lýðheilsustefnu Reykjavíkur til 2030
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá Embætti landlæknis
Örframsögur
- Betri svefn Grunnstoð heilsu
Dr. Erla Björnsdóttir svefnsérfræðingur - Heilsueflandi skólar í heilsueflandi borg
Ólöf Kristín Sívertsen verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði - Frístundir í Breiðholti – tilraunaverkefni um aukna þátttöku barna í íþrótta og tómstundastarfi
Þráinn Hafsteinsson verkefnisstjóri frístunda og félagsauðs í Breiðholti - Hverfisskipulag og Lýðheilsa
Ævar Harðarsson deildarstjóri Hverfisskipulags Reykjavíkur - Fundarstjóri og samantekt
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/lydheilsa