Gjaldskylda afturkölluð á þremur götum við HÍ

Bílastæðasjóður

Núverandi gjaldskylda er þó í gildi þar til ný samþykkt hefur verið birt í Stjórnartíðindum og merkingar og greiðsluvél fjarlægð. Mynd/Arctic Images
loftmynd af háskólasvæðinu, gras og hús.

Samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í vikunni að afturkalla gjaldskyldu á Aragötu, Oddagötu og Sæmundargötu þar til Háskóli Íslands hefur gjaldtöku á nærlægum svæðum.  Ekki er talin þörf á gjaldskyldu í þessum götum fyrr en þá.

Núverandi gjaldskylda er þó í gildi þar til ný samþykkt hefur verið birt í Stjórnartíðindum og merkingar og greiðsluvél fjarlægð.