Gata og lagnir verða endurgerð í Tranavogi í Vogabyggð hefst í ágúst. Áætluð verklok eru 15. desember.
Í Tranavogi er um að ræða heildarframkvæmd fyrir veitulagnir, jarðvinnu undir götur og stéttar, yfirborðsfrágang götu og stétta, götulýsingu og frágang regnbeða ásamt gróðursetningu.Tilboð sem berast í framkvæmdir verða opnuð 9. júlí og verður væntanlegur verktaki valinn í framhaldinu.
Aðgengi fyrir gangandi að húsum
Aðgengi fyrir gangandi að húsum verður tryggt. Ef leiða þarf hjáleið gönguleiðar yfir framkvæmdaskurð verður göngubrú lögð. Upplýsingaskilti framkvæmdaraðila verða staðsett á byrjun og enda framkvæmdarsvæða og þar sem lokanir eiga við.
Verkið
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi en búast má við að það hefjist í ágúst.
- Rif og förgun á malbiki, hellum, steyptri stétt og kantsteini auk niðurtekt núverandi ljósastaura.
- Uppgröftur fyrir götu- og gangstéttastæðum.
- Fullnaðarfrágangur fyllinga undir nýjar götur og gangstéttastæði.
- Fullnaðarfrágangur stofnlagna ofanvatns, skolps og vatns í götustæði.
- Fullnaðarfrágangur götulýsingar.
- Fullnaðarfrágangur hitaveitu, raflagna og stýristrengja í gangstéttarstæði.
- Fullnaðarfrágangur púkklags ofan á nýja fyllingu undir malbik.
- Fullnaðarfrágangur á neðra malbikslagi ofan á púkkmulning í götustæðum.
- Fullnaðarfrágangur kantsteins og gangstéttaryfirborðs.
- Fullnaðarfrágangur blágrænna beða.
Verktaki mun hafa samband við hagaðila og vinna með þeim í góðri samvinnu.