Fyrstu deilibílar Hopp komnir á götur borgarinnar

Borgarstjóri ók fyrsta deilibíl Hopp í dag.

Hopp í samstarfi við Höld-Bílaleigu Akureyrar tilkynntu í dag að frá og með föstudeginum 18. mars verði hægt að finna 10 rafbíla í Hopp appinu og leigja í skammtímaleigu innan Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ók fyrsta deilibílnum í dag.

Hopp hefur leigt út skútur undanfarin ár en nú hyggst fyrirtækið bæta við fleiri farartækjum og nú verður boðið upp á rafdeilibíla frá og með 18. mars nk.

Hopp hefur verið að skoða möguleikann á að bjóða upp á deilibílalegu á bílum og hafa nú tekið upp samstarf við Höldur-Bílaleiga Akureyrar. Forsendur fyrir samstarfi þessarra tveggja fyrirtækja, sem bæði setja umhverfismál í forgang hjá sér, voru strax til staðar og var hafist handa við að klára hugbúnaðinn hjá Hopp ehf. og finna rafbílana frá Bílaleigu Akureyrar um miðjan febrúar.

Byrjað verður með 10 rafbíla til þess að mæla eftirspurn, safna gögnum og mælingum, prufukeyra appið og þróa þjónustuna. Hugbúnaðurinn er íslenskur, hannaður og forritaður af Hopp ehf. Stefnan er að fjölga deilibílunum jafnt og þétt á næstu mánuðum til að mæta eftirspurn.

Fólkið kallar á fjölbreytta ferðamáta og umhverfið kallar á breyttar ferðavenjur

Forsvarsmenn Hopps segja að íbúar borgarinnar séu að kalla eftir fjölbreytileika í samgöngum og með því að bjóða upp á deilibíla sé verið að brúa ákveðið bil. Fólk geti farið með almenningssamgöngum í vinnuna og tekið svo deilibíl ef það þarf að skjótast á vinnutíma. Þeir sem hafa valið sér bíllausan lífsstíl hafa nú aðgengi að deilibíl frá Hopp ef þarf að sinna erindum sem erfiðara er að sinna á hjóli eða með almenningssamgöngum. Þá telur fyrirtækið einnig vera mikla möguleika með notkun deilibíla á háskólasvæðinu sem og Vatnsmýrinni.  

Mátt leggja deilibílnum “hvar sem er” 

Rafbílarnir verða staðsettir á borgarlandinu og það má leggja þeim í öll lögleg bílastæði, einnig gjaldskyld. Notandinn getur því skilið bílana eftir þar sem honum hentar og er laust stæði. Notendurnir finna bílana í Hopp appinu, skanna þá og á innan við 2 mínútum er notandinn búinn að staðfesta/sannreyna ökuskírteinið sitt, samþykkja skilmála og aka af stað. 

Það kostar 300 kr. að starta bílum og mínútugjaldið er 45 kr. Það mun því kosta um 660 kr. að hoppa frá Háskóla Íslands og út á Granda. Til að byrja með verður aðeins hægt að leggja deilibílunum innan Reykjavíkur en hægt er að keyra bílinn út fyrir svæðið og setja bílinn þá á pásu og aka honum svo aftur inn á svæðið. En að setja bílinn á pásu kostar 10 kr. mínútan. 

Deilibílar hafa náð vinsældum erlendis.

Samkvæmt upplýsingum Hopp hafa vinsældir deilibíla í aukist jafnt og þétt í borgum á undanförnum árum. "Sem dæmi frá nágrannalöndum okkar þá er M sem er í eigu Volvo í Svíþjóð búin að taka um 12.000 einkabíla af götum borganna. Þetta er ekki bara umhverfislega mikilvægt heldur einnig skipulagslega enda er landsvæðið/bílastæðin sem annars geymdu þessa bíla nú hægt að nýta fyrir fólk. Landsvæðið sem þessir 12.000 bílar tóku undir bílastæði samsvarar 18 fótboltavöllum." segir Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp á Íslandi.