Fullorðnir fá frítt inn í fylgd barna í haustfrínu

Menning og listir Skóli og frístund

Börn að leik

Frístundamiðstöðvar, bókasöfn og aðrar menningarmiðstöðvar í Reykjavík bjóða upp á allskonar viðburði og sýningar í haustfríinu sem hefst í grunnskólum borgarinnar í vikunni, fimmtudaginn 24. október. 

Fullorðnir fá frítt inn í fylgd með börnum og ættu því öll að geta fundið sér eitthvað skemmtilegt til að gera í haustfríinu og nýta til samveru.

Grímugerð, karókí og annað húllumhæ

Haustfrí í grunnskólum Reykjavíkur stendur yfir frá 24. til 28. október og er úrvalið á viðburðum, sýningum og smiðjum fjölbreytt og spennandi. Í frístundamiðstöðvunum er boðið upp á allskyns afþreyingu eins og hrekkjavökugleði, bingó, sundlaugapartý, ógeðskassa, klifur hjólreiðar, ratleiki, föndur og útigrill.

Listasöfn borgarinnar verða einnig opin og bjóða að auki upp á skemmtilegar listasmiðjur, karaktersmiðjur, draugaratleiki, kynningar og leiðsögn. Borgarbókasöfnin verða líka með allskonar húllumhæ. Til dæmis má nefna hrekkjavökuföndur, hrekkjavökubúninga skiptimarkaður, bingó, spurningakeppnir, Minecraft smiðja og ýmsar þrautir.

Dagskrá aðgengileg á viðburðarsíðu.

Haustfrí 2024