Framtíð íþrótta er björt í Breiðholti

Umhverfi Skóli og frístund

""

Mikil gleði ríkti hjá ÍR í Mjóddinni síðdegis í gær þegar merkum áfanga í uppbyggingu á svæðinu var fagnað. Knatthús með frjálsíþróttaaðstöðu var tekið í notkun og að auki tóku Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ingigerður H. Guðmundsdóttir formaður ÍR fyrstu skóflustunguna að öðru íþróttahúsi suðaustan við knatthúsið.

Framkvæmdakostnaður við þessar tvær byggingar er um 2,2 milljarðar. Jafnframt verður unnið að lóðaframkvæmdum og gengið frá stórum grænum svæðum til fótboltaiðkunar.

„Ég ólst upp við það að þurfa að sækja íþróttir í önnur hverfi því skortur var á aðstöðu í Árbænum. Uppbygging fjölbreyttra íþróttamannvirkja í Breiðholti hefur verið eitt af mínum hjartans málum,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. „Ég er stoltur af þvi að þetta glæsilega knatthús, með æfingaaðstöðu fyrir frjálsíþróttafólk er tilbúið  og ekki síður að við erum að taka skóflustungu að íþróttahúsi sem verður fyrir handbolta, körfubolta og fleiri íþróttir. Á næsta ári tökum við nýjan frjálsíþróttavöll í Mjódd í gagnið og borgarráð hefur samþykkt að velja dans- og fimleikahúsi stað í Efra-Breiðholti. Framtíð íþrótta er björt í Breiðholti.“

Gleðidagur fyrir ÍR-inga og samfélagið í Breiðholti   

„Þetta er mikill gleðidagur fyrir okkur ÍR-inga sem og samfélagið okkar hér í Breiðholti,“ segir Ingigerður H. Guðmundsdóttir, formaður ÍR. „Þau mannvirki sem rísa hér á svæðinu munu gjörbreyta starfi ÍR, gera deildum félagsins sem eru 10 talsins með um það bil 2600 iðkendur, kleift að vinna mun betur saman og færir samfélaginu í Breiðholti stað til að efla vegferð og starf íþróttahreyfingarinnar enn frekar.  Tilgangur félagsins er jú fyrst og fremst að ná til barna og unglinga, tryggja framúrskarandi þjálfun, góða aðstöðu til íþróttaiðkunar og veita þeim tækifæri til að þróast sem íþróttafólk. Tryggja forvörn og reyna með öllum ráðum að halda börnum og unglingum áfram hjá okkur til að sjá þau vaxa og dafna sem sterkir fullorðnir einstaklingar“.  

Knatthús og frjálsar íþróttir  

Í knatthúsinu nýja er annars vegar gervigrasvöllur á við hálfan knattspyrnuvöll og hins vegar æfingasvæði fyrir frjálsar íþróttir. Alls rúmir 4.200 fermetrar. Auk þess er tveggja hæða hliðarbygging meðfram suðurhlið salarins og er hún rúmir 1.100 fermetrar. Þar verður meðal annars búningsaðstaða og tæknirými.

Skóflustunga  við íþróttahúsið sem nú er risið var tekin í febrúar 2019. Hönnun annaðist arkitektastofan Arkís og verktaki við uppbyggingu var Munck. Eftirlit var á hendi Hnit verkfræðistofu. Framkvæmdakostnaður er rúmur milljarður króna.

Handbolti, karfa og fleiri íþróttagreinar   

Íþróttahúsið sem tekin var skóflustunga að mun rísa suðaustan við knatthúsið. Innangengt verður milli bygginganna. Í tengibyggingu er gert ráð fyrir búningsklefum og aðstöðu fyrir lyftingar.

Nýja aðstaðan mun mæta kröfum til keppni í handbolta og körfubolta, auk þess sem svigrúm verður til iðkunar og keppni í fleiri greinum. Byggingin verður á tveimur hæðum, nærri 4.200 fermetrar og þar af er íþróttasalurinn nær 2.400 fermetrar.

Í tveimur hliðarbyggingum hússins verður m.a. móttaka, salerni, áhaldageymslur, tæknirými og aðstaða fyrir fjölmiðla.

Áætlaður framkvæmdakostnaður er rúmar 1.150 milljónir.  Hönnun var á hendi ASK arkitekta og verktaki er Flotgólf ehf.

Framkvæmdir á lóð   

 Samhliða byggingarframkvæmdum verður unnið við lóðafrágang á ÍR svæðinu.  Aðallega verða þetta stórir grænir fletir sem ætlaðir eru til fótboltaiðkunar, en meira verður lagt í hönnun lóðar og frágang við aðalinngang og aðkomu.