Framkvæmdir á Hlemmsvæðinu hefjast bráðlega

Framkvæmdir Samgöngur

Hlemmur framtíðar

Nú styttist í útboð og framkvæmdir á fyrsta áfanga á Hlemmi ásamt Rauðarárstíg frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Reykjavíkurborg og Veitur munu kynna og upplýsa hagsmunaaðila og borgarbúa um næstu skref.

Hönnunartillögur Mandaworks í Svíþjóð og DLD- Dagný Land Design voru valdar árið 2018 og unnin var áframhaldandi hönnun á Hlemmi. Yrki arkitektar unnu deiliskipulag að svæðinu í samstarfi við Reykjavíkurborg og hönnuði svæðisins.

Breytingin nær til lóða og almenningsrýma sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Stækka á Hlemmtorg með því að breyta umferð um svæðið. Tilgangur breytinga er  að ná utan um framkvæmdasvæðið sem fylgdi breytingum á gatnamótum Borgartúns við Snorrabraut og framlengingu hjólastíga yfir Sæbraut.

Hvað verður gert á þessu ári?

Útboð og framkvæmdir á Laugavegi og Rauðarárstíg norður

Það sem er á döfinni á árinu 2022 er kafli á Laugavegi – svokallaður snákur sem er myndar afmarkað svæði með gróðri, setsvæðum, hjólastæði og óformlegum leikrýmum. Fyrsti áfanginn, sem verður framkvæmdur í sumar, nær frá Snorrabraut að húshorninu til móts við Hlemm Mathöll.

Stálprófíll sem rís og hnígur er leiðandi þáttur á þessum kafla en í honum er einnig falin óbein lýsing á völdum svæðum og afmarkar hann þjónustuleiðir í göturýminu. Yfirborð snáksins er myndað með náttúrusteini, en leiðin þjónar einnig hlutverki blágrænna ofanvatnslausna. Sólarmegin á Laugaveginum er gert ráð fyrir að veitingastaðir geti vaxið út í göngurýmið.

Rauðarárstígur frá Grettisgötu að Hlemmi er sólrík gata og í tillögunni er gert ráð fyrir setsvæðum og leikmöguleikum í átt að torgsvæðinu. Lítil hestahjörð stefnir að torginu en það eru hreyfanlegir abstrakt hestar sem mynda m.a set- og leiksvæði. Veitinga- og þjónustuaðilar geta einnig vaxið út í göngurýmið.

Rauðarárstígur frá Bríetartúni

Á sama tíma og Hlemmur fær nýtt hlutverk gerði VSÓ ráðgjöf í samstarfi við Reykjavíkurborg yfirborðs og gatnahönnun fyrir Rauðarárstíg norður af Hlemmi. Svæðið er hannað sem vistgata, er í einum fleti og allt rýmið verður hellulagt.

  • Gatnamót við Bríetartún verða upphækkuð og akstursrými afmarkað með lágum kantsteini.
  • Rauðarárstígur verður lokaður til suðurs við Gasstöðina og með snúningshaus fyrir fólksbíla í botni götunnar.
  • Rafhleðslustæði verða nyrst í götunni en í götunni verða einnig biðsvæði fyrir leigubíla ásamt stæðum fyrir stutt stopp.
  • Meðfram húsaröð við Rauðarárstíg er aðkomusvæði íbúðarhúsanna. Við jaðar bygginganna er gert ráð fyrir gróðursvæði að hluta sem skapar mjúka ásýnd og sem getur skapað aðstæður til dvalar fyrir íbúa.
  • Afvötnun hellusvæða er í rennustein og í niðurföll. Regnbeð eru á torgsvæði næst Bríetartúni og meðfram göngusvæðum.
  • Götutré gróðursett í trjárist verða meðfram götunni og regnbeð með fjölbreyttum gróðri.
  • Lýsing í götunni er með 4-5 m háum miðborgarlömpum. Götugögn s.s. bekkir og hjólagrindur verða í samræmi við götugagnastefnu Reykjavíkurborgar.
  • Næst torgsvæðinu og Hlemmi er komið fyrir stæðum fyrir hreyfihamlaða.
  • Gengið verður frá Rauðarárstíg næst Hverfisgötu til bráðabirgða með hellulögn og torgsvæði þar til hægt er að fara í lokafrágang svæðisins að hönnun Borgarlínu.  

Þessi áform og framkvæmdaáætlun er nú kynnt fyrir hagsmunaaðilum og borgarbúum af Reykjavíkurborg og Veitum.

Upplýsingar um Rauðarárstíg norður og forsendur 

Upplýsingasíða um Hlemmsvæðið á vef Reykjavíkurborgar