Fjölbreytt framboð af viðburðum og smiðjum í Vetrarfríinu

Menning og listir Skóli og frístund

listasmiðja á Kjarvalsstöðum

Þau sem ætla að vera í borginni í vetrarfríinu geta haft nóg fyrir stafni því menningarstofnanir borgarinnar og ýmsar starfsstöðvar frístundastarfsins verða með skipulagða dagskrá víðs vegar um borgina.

Fullorðnir fá frítt inn í fylgd barna

Vetrarfrísdagskrá Reykjavíkur er stútfull og fullorðnir fá frítt inn á söfnin og viðburðina í fylgd með börnum þessa vetrarfrísdaga, 17- 20. febrúar.

Borgarbókasöfnin, Borgarsögusafnið og Listasafn Reykjavíkur verða með viðburði og sýningar fyrir allan aldur og má til dæmis nefna vísindasmiðju, leikfangasýningu, tálgunarnámskeið, bingó, búningar, ratleikir og föndur. 

Í boði að tálga, syngja, spila badminton og fleira

Frístundamiðstöðvarnar bjóða heim og verður ýmislegt skemmtilegt í boði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Má nefna að boðið verður upp á fjölskyldu badminton, hópsöng í heitum pottum, rafrænan ratleik, karaoke, grilla sykurpúða og margt margt fleira. 

Upptalningin er langt í frá tæmandi og eru borgarbúar hvattir til að fara vel yfir dagskrána og skrá hjá sér því sem þeir vilja ekki missa af. 

Dagskrá - Öllum dagskráliðum hefur verið safnað saman á einn stað þar sem má lesa ítarlegri lýsingar á viðburðum og smiðjum.

Dagskrá plakat