Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkur 2023

Skipulagsmál Umhverfi

Vesturgata viðurkenning 2023

Ár hvert veitir Reykjavíkurborg viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar. Auk þess eru veittar viðurkenningar fyrir „sumargötur“, þ.e. svæði fyrir framan verslanir og þjónustu sem eru skemmtilega útfærð yfir sumartímann.

Nú er óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningu í ár. Valið verður í höndum starfshóps sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og Borgarsögusafni.

Ábendingar skulu sendar inn með tölvupósti merktum Fegrunarviðurkenningar 2023 á skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi þann 20. júlí 2023.

Saga viðurkenningarinnar

Fegrunarnefnd Reykjavíkurborgar var skipuð í maí árið 1968. Eftirtalin félagssamtök áttu fulltrúa í nefndinni: Arkitektafélag Íslands, Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands og Húseigendafélag Reykjavíkur. Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst árið 1968 valdi Fegrunarnefndin í fyrsta sinn fegurstu götu Reykjavíkurborgar og varð Safamýri fyrir valinu. Árlega uppfrá því hafa fegrunarviðurkenningar verið afhentar fyrir falleg hús og lóðir í Reykjavík á afmæli Reykjavíkurborgar í tengslum við afmælið.