Færanlegar kennslustofur til sölu

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í þrjár færanlegar kennslustofur við Dalskóla í Úlfarsárdal. 

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í þrjár færanlegar kennslustofur sem staðsettar eru á skólalóð Dalskólans í Reykjavík að Úlfarsbraut 122-124. Gulmerktu stofurnar á myndinni verða sýndar áhugasömum kaupendum þann 11. júní kl. 13. Óskað er eftir staðgreiðslutilboðum. Væntanlegur kaupandi þarf að fjarlægja stofuna/stofurnar af lóð skólans fyrir 30. júní 2019.

 Tilboðsfrestur er til 14. júní  fyrir kl. 12 á hádegi og skal skila tilboði í merktu umslagi til þjónustuvers Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14. Tilboði er skilað á tilboðsblaði sem er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar

Sótt er um byggingaleyfi  til þess að  flytja færanlega kennslustofu hjá því sveitarfélagi þar sem lóðin er staðsett sem kennslustofan verður flutt á. Að fengnu slíku leyfi þarf að sækja um flutningsleyfi til samgöngustofu og lögreglu. Að fengnu leyfum frá samgöngustofu og lögreglu er hægt að flytja kennslustofuna. Þegar flutningi er lokið þarf að tilkynna það til byggingafulltrúans í Reykjavík sem annast afskráningu stofunnar úr þjóðskrá.

Tilboðsblað