Endurbætur á hólmanum í Tjörninni að hefjast
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í stóra hólmanum í Tjörninni eftir helgi en markmið framkvæmdanna er að styrkja fuglalífið á Tjörninni. Farið verður í aðgerðir til þess að bæta varpland í hólmanum, fyrir til að mynda endur, og einnig verða bakkavarnir endurnýjaðar. Á meðan framkvæmdir standa yfir í desembermánuði þarf að loka fyrir aðgengi gangandi að Tjörninni til móts við Fríkirkjuna og verða settar upp hjáleiðamerkingar.
Áður hefur verið farið í svipaðar framkvæmdir í Þorfinnstjörn með góðum árangri þar sem kríuvarp hefur eflst merkjanlega. Með aðgerðunum fylgir Reykjavíkurborg eftir ráðleggingum líffræðinga sem vaktað hafa lífríki Tjarnarinnar um árabil.
Jarðvegsskipt og kantur endurhlaðinn
Fjarlægja á efsta hluta núverandi yfirborðs af hólmanum, leggja út jarðvegsdúk, möl og jarðveg. Hluti hólmans verður þökulagður á ný. Það er gert til þess að draga úr sókn hvannar og annarra stórvaxinna tegunda sem draga úr gæðum varplands í hólmanum. Grjótkantur umhverfis hólmann verður endurhlaðinn til þess að draga úr rofi.
Frostið nýtt til framkvæmda
Stefnt er á að nýta frostakafla framundan til þess að fjarlægja efsta lagið af hólmanum og flytja efni út í hann. Það er gert nú þar sem flytja þarf efnið á ís. Til þess að ljúka seinasta hluta framkvæmda þarf að bíða þangað til vorar á ný. Þá verður hægt verður að ganga frá hleðslu umhverfis hólmann og tyrfa yfir valin svæði. Verklok eru áætluð í lok maí 2025.
Saga fuglalífs og hólmans
Sjálfsagt eru fáir staðir á Íslandi með jafnlanga sögu samfelldrar byggðar eins og í námunda við Tjörnina. Áður fyrr var Tjörnin sjávarlón en það lokaðist af fyrir um 1200 árum en hefur með tímanum orðið að ferskvatnstjörn. Við upphaf 20. aldar var fuglalíf á Tjörninni mjög takmarkað þar sem flestir fuglar voru veiddir en frá 1919 hafa þeir verið friðaðir. Samhliða friðun var sett á siglingabann og gátu þá fuglar orpið óáreittir í hólmum Tjarnarinnar, en þeir eru enn þann dag í dag mikilvægustu varpstaðir svæðisins. Tjörnin og Vatnsmýrin eru á C-hluta Náttúruminjaskrár og Friðland fyrir fugla var stofnað 1984 í norðanverðri Vatnsmýrinni.
Stóri hólminn í Tjörninni hefur verið á kortum af Reykjavík frá því um 1800 og hefur hann í tímans rás verið bæði stækkaður og hlaðið í kringum hann. Þá hafa ýmsar hugmyndir verið uppi um notagildi hans en í lok 19. aldar stóð til að þar yrði byggt veitingahús og þangað lögð brú. Þá var þar sett upp sleðahringekja á vetrum á svipuðum tíma.