Breytingar á gjaldsvæðum bílastæða

Bílastæðasjóður

Breytingarnar verða kynntar vel áður en gjaldskylda verður tekin upp. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th
Bílastæðamælir

Breytingar verða gerðar á gjaldsvæðum bílastæða í Reykjavík innan tíðar. Einkum er um að ræða stækkun á gjaldsvæði 2 en talningar frá því árslok 2023 sýna mikla og stöðuga nýtingu bílastæða á jöðrum núverandi gjaldsvæða. Áður en farið verður að innheimta gjald í samræmi við tillöguna verður komið upp viðeigandi merkingum og greiðslubúnaði þar sem þörf er á. Breytingarnar verða kynntar vel áður en gjaldskylda verður tekin upp.

Breytingarnar voru samþykktar á fundi umhverfis og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í morgun.

Einnig verður stækkun á gjaldsvæði 1 við Háskóla Íslands. Stækkun gjaldssvæði við HÍ kemur til vegna þess að almenn gjaldtaka hefst á bílastæðum við skólann í haust. 

Um er að ræða eftirfarandi stækkanir gjaldsvæða:

1. Gjaldsvæði 1

  • Sturlugata

2. Gjaldsvæði 2

  • Aragata
  • Egilsgata, bílaplan við Hallgrímskirkju
  • Eiríksgata, bílaplan við Hallgrímskirkju
  • Oddagata
  • Seljavegur
  • Sæmundargata
  • Vesturgata milli Ánanausta og Stýrimannastígs

Hægt að sækja um íbúakort

Minnt er á að íbúar á gjaldskyldum svæðum eða í næsta nágrenni þeirra (búsettir innan íbúakortasvæða) geta sótt um íbúakort að uppfylltum vissum skilyrðum. Íbúakort gefur handhafa þess heimild til þess að leggja bifreið sinni án endurgjalds á gjaldskyldu svæði innan gildissvæðis korts síns.